Forsíða Fréttasafn ÍBR Þormóður sigraði í Króatíu
Þormóður sigraði í Króatíu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 25. október 2010 10:20

Þormóður Jónsson, júdókappi úr Júdófélagi Reykjavíkur, sigraði um helgina í +100 kg flokki  á XIII International Judo Cup of Dubrovnik sem er alþjóðlegt mót í Króatíu. Á þessu móti sem er mjög sterkt varð Þormóður að láta sér þriðja sætið duga í fyrra en núna vann hann allar sínar viðureignir örugglega og þar með gullverðlaunin.

Þormóður hefur dvalið ásamt félögum sínum þeim Hermanni Unnarssyni og Ægi Valssyni í Tékklandi síðan í haust við æfingar og verður þar fram í desember. Næst keppa þeir félagar á Opna Finnska mótinu 6.-7. nóvember og síðan viku seinna (13.-14.nóvember) á Europian Cup á Marabella á Spáni.

Hægt er að fylgjast með gengi Þormóðs og félaga á heimasíðu Júdófélags Reykjavíkur judo.is.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700