|
Niðurstöður könnunarinnar Ungt fólk |
|
|
|
Mánudagur, 25. október 2010 10:39 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur í samstarfi við RANNSÓKNIR & GREININGU kynnir niðurstöður vegna rannsókna meðal nemenda í 8.-10. bekk grunnskóla í Reykjavík sem stunda íþróttir innan ÍBR. Þeir sem hafa áhuga á viðhorfi unglinga til íþróttafélaga, íþróttaþjálfara, vímuefnanotkun þeirra og sjálfsmynd eru hvattir til að mæta á kynningarfund kl. 12:00 miðvikudaginn 27. október í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum.
Haustið 2009 fór Íþróttabandalagið af stað með verkefni sem ber heitið Ánægjuvogin í samvinnu við ÍTR og ÍSÍ. Þátttaka ÍBR í könnuninni Ungt fólk er framhald af því verkefni en frekari upplýsingar má finna hér á heimasíðunni.
Á meðal þess sem þeir Jón Sigfússon framkvæmdastjóri RANNSÓKNA & GREININGAR og Viðar Halldórsson íþróttafélagsfræðingur munu kynna á fundinum á miðvikudag eru áhugaverðar upplýsingar varðandi munntóbaksnotkun í íþróttahreyfingunni.
Forsvarsmenn íþróttahreyfingarinnar og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir ásamt fjölmiðlafólki sem sérstaklega er hvatt til að gera þessu góð skil.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 25. október 2010 10:42 |