Forsíða Fréttasafn ÍBR 4.bekk boðið á skauta
4.bekk boðið á skauta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 22. október 2010 17:24

Undanfarin sex ár hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur gefið börnum í grunnskólum Reykjavíkur hreyfihvetjandi gjafir. Gjafirnar hafa verið gefnar í tengslum við sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Tilgangurinn er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt.

Í vikunni fengu allir nemendur í 4.bekk grunnskólanna í Reykjavík vetrargjöfina sína afhenda, als 1.362 nemendur í 38 skólum. Vetrargjöf 4.bekkinga er boðsmiði á skauta ásamt litlum upplýsingabækling um skauta og skautaíþróttir. Skautaboðið er með þeim hætti að hver einstaklingur fær aðgöngumiða að skautasvelli og leigu á skautum og hjálmi sem gildir í Skautahöllina í Laugardal eða í Egilshöll í Grafarvogi dagana 23.október til 23.nóvember 2010.

Grunnskólarnir í Reykjavík hafa góðfúslega dreift gjöfunum til nemenda og nokkrir skólar fara í sameiginlega ferð með sína nemendur á skauta. Það er von Íþróttabandalagsins að gjöfin komi að góðum notum og hvetji börn enn frekar til að hreyfa sig.

Síðast uppfært: Föstudagur, 22. október 2010 17:28
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700