|
Miðvikudagur, 06. október 2010 10:54 |
|

Ármenningurinn Jón Sigurður Gunnarsson sigraði í fjölþraut juniora á alþjóðalega fimleikamótinu Malarcupen 2010 Dagana 2. – 3. Október s.l. fór fram hin árlega Malarcup fimleikakeppni í Bromma í Svíþjóð en keppt er í áhaldafimleikum. Keppnin hefur verið haldin síðast liðin 27 ár og hafa Íslendingar oft sent lið til keppninnar. Að þessu sinni sendi fimleikadeild Ármanns 22 einstaklinga í 5 liðum til keppni, 3 karlalið og 2 kvennalið. Keppt var í liðakeppni í fjölþraut á laugardeginum ásamt fjölþraut hjá einstaklingum. Hinn 18 ára gamli Jón Sigurður Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og sigraði unglingaflokk karla en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur strákur sigrar í þessari keppni. A-lið Ármanns í kvennaflokki varð í 3. Sæti í fjölþrautinni og Agnes Suto varð í 3. Sæti í fullorðinsflokki. Á sunnudeginum fór fram keppni í úrslitum á einstökum áhöldum í stráka- pilta-, unglinga- og fullorðinsflokki karla og stúlkna-, unglinga- og fullorðinsflokki kvenna. Og aftur gátu Ármenningar fagnað þar sem að hin 15 ára gamla Jóhanna Rakel Jónasdóttir vann til 1. verðlauna á bæði Slá og Gólfi en hún varð Norðurlandameistari unglinga á slá árið 2009. Ármenningurinn Agnes Suto vann síðan bæði til silfurverðlauna á stökki og gólfi í fullorðinsflokki. Til viðbótar þessu féllu 3 bronsverðlaun í hlut Ármenninga kvennamegin og 5 karlamegin. Jón Sigurður meiddist á baki á laugardeginum og gat því ekki tekið þátt í keppninni á laugardeginum en hann átti að keppa á 4 áhöldum af 6 í einstaklingskeppninni. Þessi árangur gefur góð fyrirheit fyrir komandi fimleikavetur en 1. Mót vetrarins verður haldið um næstu helgi en það er Haustmót FSÍ en það er keppt í 1. og 2. þrepi ásamt frjálsum æfingum kvenna.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 06. október 2010 11:06 |