| Grunnskólamót í knattspyrnu |
|
|
| Mánudagur, 04. október 2010 10:27 |
|
Í keppni 7.bekkja tóku 19 stúlknalið þátt og 22 drengjalið. Rimaskóli sigraði keppni beggja kynja. Fossvogsskóli var í öðru sæti stúlkna og Langholtsskóli í öðru sæti drengja. Í keppni 10.bekkja tóku 15 stúlknalið og 17 drengjalið þátt. Í úrslitum mættust Réttarholtsskóli og Árbæjarskóli bæði í drengja og stúlkna keppninni. Réttarholtsskóli stóð uppi sem sigurvegari í stúlknaflokki og Árbæjarskóli í drengjaflokki. Á heimasíðu KSÍ má finna úrslit allra leikja í Grunnskólamótinu 2010. Frá árinu 1988 hefur Knattspyrnuráð Reykjavíkur staðið fyrir Grunnskólamóti í knattspyrnu milli grunnskólanna í Reykjavík. Smellið hér til að skoða lista yfir sigurvegara í Grunnskólamótinu í knattspyrnu frá upphafi. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 04. október 2010 11:06 |