Forsíða Fréttasafn ÍBR Kynjunum ekki mismunað í Reykjavík
Kynjunum ekki mismunað í Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 21. september 2010 16:15

Í kvöldfréttum Sjónvarpsins í gær var fullyrt að víðsvegar fengju knattspyrnudrengir fleiri æfingatíma á viku heldur en knattspyrnustúlkur. Þetta mun hafa verið niðurstaða könnunar fréttastofu Sjónvarps á meðal 15 félaga sem eiga lið í efstu deildum kvenna og/eða karla.

Í Reykjavík eru níu félög sem bjóða uppá knattspyrnuæfingar fyrir börn, unglinga og meistaraflokka; Fjölnir, Fram, Fylkir, ÍR, KR, Leiknir, Valur, Víkingur og Þróttur. Í öllum þessum félögum, eins og eðlilegt er, fá stúlkur og drengir jafn marga æfingatíma á viku.

Ef könnun fréttastofu hefur verið gerð með því að skoða heimasíður knattspyrnudeilda er líklegt að um misskilning sé að ræða. Mun færri stúlkur æfa knattspyrnu en drengir og þarf því oft að skipta þeim uppí nokkra æfingahópa. Æfingatöflur á heimasíðum félaganna geta verið misvísandi vegna þessa. Þá skal þess getið að á mörgum stöðum eru æfingatöflur enn í vinnslu enda vetrartímabil knattspyrnuflokka ekki hafið og því ekki búið að setja inn allar æfingar. Vetrartímabil knattspyrnufélaga í Reykjavík hefst 1.október.

Í mörgum félögum í Reykjavík hefur verið gert sérstakt átak í að fá fleiri stúlkur til að stunda knattspyrnu sem hefur gengið vel. Þá eru nokkur félaganna með markvissa jafnréttisstefnu sem farið er eftir í hvívetna. Í íþróttanámsskrám Íþróttabandalags Reykjavíkur og hverfafélaganna í Reykjavík er auk þess fjallað um jafnrétti og mikilvægi þess í íþróttastarfinu.

Íþróttahreyfingunni var eðlilega brugðið við frétt Sjónvarpsins í gærkvöldi. Það hefur verið staðfest með samtölum við forsvarsmenn allra áður nefndra félaga í dag að fréttin á ekki við knattspyrnudeildirnar í Reykjavík.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 21. september 2010 16:22
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700