Forsíða Fréttasafn ÍBR Vel heppnuð ferð til Árósa
Vel heppnuð ferð til Árósa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 03. september 2010 14:01

Fimm fulltrúar íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík tóku þátt í Norræna ungmennafundinum 2010 í Árósum um síðustu helgi. Á Norræna ungmennafundinum komu saman ungmenni frá vinabæjum Reykjavíkur á Norðurlöndunum; Aarhus, Bergen, Gautaborg og Turku, ásamt einum eldri fulltrúa hverrar borgar.

Fulltrúar borganna sem allir eru starfandi þjálfarar eða leiðtogar í íþróttahreyfingunni sátu fræðandi fyrirlestra og unnu ýmis verkefni með kollegum sínum á Norðurlöndunum. Markmiðið var að skapa meira samstarf milli bæjanna og gefa einstaklingunum færi á að læra eitthvað nýtt auk þess að læra hvort af öðru. Þema fundarins þetta árið voru íþróttir og innflytjendur.

Í Árósum er stærsta innflytjendahverfi Danmerkur. Af því starfi sem þar hefur verið unnið var margt að læra og fékk okkar fólk þar margar góðar hugmyndir með heim. Allt skipulag í hjá vinum okkar í Árósum var til fyrirmyndar og dagskráin sem boðið var uppá bæði spennandi og skemmtileg. 

Reykvíski hópurinn var skipaður þeim Björgu Hákonardóttur, Haraldi Þóri Hugossyni, Bergrúnu Stefánsdóttur, Viktor Lekve og Ragnhildi Skúladóttur.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700