| Góð skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka |
|
|
| Mánudagur, 16. ágúst 2010 00:00 |
|
Frá árinu 2003 hefur Reykjavíkurmaraþon verið í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur. Auk starfsmanna Íþróttabandalagsins koma um 400 sjálfboðaliðar að framkvæmd Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, flestir þeirra eru úr íþróttafélögunum í Reykjavík. Skráning í hlaupið gengur vel og virðist ætla að verða fjölgun á þátttakendum milli ára. Fimm dögum fyrir hlaupið í fyrra voru 4114 skráðir í Reykjavíkurmaraþonið en í dag eru 4491 búnir að skrá sig í hlaupið eða rúmlega 9% fleiri. Mest aukning er í 10 km vegalengdinni þar sem 2020 hafa skráð sig til þátttöku. Hlauparar frá 40 löndum víðsvegar um heiminn hafa skráð sig í hlaupið og koma flestir frá Bandaríkjunum, Þýskalandi, Kanada og Bretlandi. Skráðir erlendir þátttakendur eru nú 824 en 3667 Íslendingar. Reynslan sýnir að flestar skráningar koma síðustu dagana fyrir hlaup og því má eiga von á að um 8.000 manns skrái sig í hlaupið næstu daga. Í fyrra tóku 11.487 þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Skráning í hlaupið fer fram á marathon.is en þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar um hlaupið. Forskráningu á netinu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 18.ágúst. Eftir það verður hægt að skrá sig á skráningarhátíð föstudaginn 20.ágúst frá klukkan 10-19. Skráningarhátíð Latabæjarhlaupsins verður í félagshúsi Ármanns og Þróttar við Gervigrasið í Laugardal (Engjavegur 7) en aðrar vegalengdir mæta í stúkubyggingu Laugardalsvallar. Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka geta eins og fyrri ár hlaupið til góðs með því að safna áheitum fyrir ýmis góðgerðarfélög. Íslandsbanki hefur látið búa til nýjan og skemmtilegan vef fyrir hlaupara til að safna áheitum. Vefurinn er á slóðinni www.hlaupastyrkur.is og þar geta allir sem ætla sér að safna áheitum stofnað sína eigin síðu sem vinir og vandamenn geta heimsótt og heitið á hlauparann á einfaldan hátt. Í dag eru tæplega 900 hlauparar búnir að skrá sig á hlaupastyrk.is og heildarsöfnun áheita er komin uppí rúmlega 6,7 milljónir. |
| Síðast uppfært: Sunnudagur, 15. ágúst 2010 23:48 |