| Reykvíkingar á Unglingalandsmóti |
|
|
| Mánudagur, 09. ágúst 2010 14:14 |
|
13. Unglingalandsmót UMFÍ fór fram í Borgarnesi um Verslunarmannahelgina. Mótið var það fjölmennasta frá upphafi en yfir 1700 ungmenni voru skráð til keppni. Fjölmargir Reykvíkingar kepptu undir merki Íþróttabandalags Reykjavíkurm á mótinu en einnig keppti stór hópur undir merkjum Ungmennafélagsins Fjölnis, eina félagsins í Reykjavík sem er bæði aðili að ÍBR og UMFÍ. Meðfylgjandi mynd var tekin af Birnu Björnsdóttur á setningarathöfn mótsins. Á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi var keppt í tíu greinum; dansi, frjálsum íþróttum, glímu, golfi, hestaíþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik, mótocrossi, skák og sundi. Reykjavík átti fulltrúa í öllum greinum sem stóðu sig vel og unnu til margra verðlauna. Úrslit, myndir og fréttir frá 13. Unglingalandsmóti UMFÍ má nálgast á heimasíðunni ulm.is.
|