Forsíða Fréttasafn ÍBR Íþróttaslysasjóður - endurgreiðsluhlutfall lækkað
Íþróttaslysasjóður - endurgreiðsluhlutfall lækkað Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 06. ágúst 2010 15:18

Frá árinu 2002 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) annast umsýslu sjóðs á vegum Heilbrigðisráðuneytisins sem hefur það hlutverk að veita endurgreiðslur til íþróttaiðkenda innan vébanda ÍSÍ vegna sjúkrakostnaðar í kjölfar íþróttaslysa. Alliri iðkendur 16 ára og eldri innan vébanda ÍSÍ, hafa frá þeim tíma getað sótt um 80% endurgreiðslu til ÍSÍ á sjúkrakostnaði, sbr. gildandi reglugerð um sjóðinn.

Við uppgjör og endurskoðun á rekstri sjóðsins í byrjun árs 2010 varð ljóst að ekki yrði hægt að reka sjóðinn miðað við óbreytt endurgreiðsluhlutfall. Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út að ekki verði aukið framlag í sjóðinn á yfirstandandi ári. Hlutfall endurgreiðslna úr sjónum verður því skert um helming, eða niður í 40%, og með því freistað að geta afgreitt allar umsóknir sem borist hafa og munu berast sjóðnum vegna slysa sem áttu sér stað árið 2009.

Á hausmánuðum munu ÍSÍ  og heilbrigðisráðuneytið funda nánar um framtíð sjóðsins og fyrirkomulag. Afgreiðslu umsókna vegna slysa sem eiga sér stað á árinu 2010 er frestað þar til nánari upplýsingar liggja fyrir um framtíð sjóðsins.

Sjá nánar á heimasíðu ÍSÍ.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700