Forsíða Fréttasafn ÍBR Ármenningar ganga til góðs!
Ármenningar ganga til góðs! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 09. júlí 2010 14:32

Fimmtudaginn 8. júli síðastliðinn stóð Fimleikadeild Ármanns fyrir fjáröflun til styrktar fórnarlömbum fellibylsins Agöthu sem reið yfir Mið-Ameríku í byrjun sumars. Þeir fjármunir sem munu safnast verða sendir til Guatemala þar sem þeim verður vel varið í að kaupa byggingarefni í ný hús fyrir fjölskyldur sem misstu heimili sín og aðrar nauðsynjavörur. El Buen Samaritano er skóli fyrir fátæk og heimilislaus börn í smábæ í Guatemala. Skólann stofnaði Magdalena Torres 1991 og síðan þá hefur hún og fjölskylda hennar tileinkað líf sitt skólanum og börnunum sem ganga í hann. Nú stunda rúmlega 150 börn nám við skólann sem rekinn er með styrkjum og hjálp sjálfboðaliða víðs vegar að úr heiminum. Í skólanum fá börnin dýrmæta menntun sem þau meta mikils. Skólinn styrkir einnig fjölskyldur þeirra með ýmsum hætti. Í júní síðastliðnum misstu nær allar fjölskyldur barnanna heimili sín vegna flóða í kjölfar fellibyls sem reið yfir landið. Nú ríkir neyðarástand og börnin eiga í engin hús að venda. Frekari upplýsingar

Iðkendur fimleikadeildarinnar söfnuðu áheitum og gengu á höndum niður Laugarveginn. Hand-skrúðgangan hófst á Hlemmi og gengið var niður að Lækjartorgi.
Frekari umfjöllun:
mbl-sjónvarpið
rúv


Síðast uppfært: Föstudagur, 09. júlí 2010 14:48
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700