| Reykjavík í 5.sæti á Alþjóðaleikum ungmenna |
|
|
| Föstudagur, 02. júlí 2010 15:38 |
|
Drengjalið Reykjavíkur í handknattleik sem tekið hefur þátt í Alþjóðaleikum ungmenna í Manama undanfarna daga varð í 5.sæti á mótinu. Eftir hádegi í dag var leikinn úrslitaleikur um 5.sætið þar sem Reykjavík mætti Kecskemet frá Ungverjalandi. Sigur reykvísku strákana var öruggur 18-12 og 5.sætið því þeirra. Flottur árangur hjá reykvísku strákunum. Í kvöld verður lokahátíð leikanna og hópurinn heldur svo af stað áleiðis til Íslands á laugardag.
Tenglar með hagnýtum upplýsingum: |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 02. júlí 2010 21:20 |