| Reykjavík keppir á Alþjóðaleikum í Manama |
|
|
| Þriðjudagur, 29. júní 2010 10:55 |
|
Frá árinu 2001 hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur með stuðningi frá Reykjavíkurborg sent þátttakendur á Alþjóðaleika Ungmenna. Leikarnir í ár eru haldnir í Bahrain í Manama. Eins og gefur að skilja er ferðalagið til Arabísku furstadæmanna mjög dýrt og því er hópurinn sem keppir í ár töluvert minni en venjulega. Níu drengir keppa á leikunum fyrir hönd Reykjavíkur í handknattleik en auk þeirra eru í hópnum þjálfari og fararstjórar. Ferðalag hópsins gekk mjög vel og hafa reykvísku drengirnir verið til fyrirmyndar í ferðinni. Þeir gista í ágætlega útbúinni skólastofu ásamt þjálfara og fararstjóra. Skipulagið hefur ekki alveg gengið upp hjá mótshöldurum í Manama og þurfti af þeirri ástæðu að fresta keppni um einn sólarhring. Fyrsti leikur reykvísku strákanna er því á morgun en ekki í dag eins og búið var að gefa út. Liðið tók eina góða æfingu í dag þar sem hópurinn náði vel saman. Nú er stefnan tekin á að skemmta sér í vatnsrennibrautagarði og hvíla svo vel fyrir átökin á morgun. Tveir leikir eru á dagskránni á morgun, sá fyrri gegn Celje frá Slóveníu og sá síðari gegn heimamönnum í Manama. Fararstjórum gengur illa að komast í tölvusamband í Manama og því skulu foreldrar ekki búast við því að fá fréttir af gengi liðsins eftir hvern leik. Þó verður tryggt að úrslit skili sér hér á ibr.is í lok hvers keppnisdags. Tenglar með hagnýtum upplýsingum: |