|
Alþjóðleg íþróttasálfræðiráðstefna |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. júní 2010 13:26 |
|
Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting. Þátttakendur munu læra hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að afreksíþróttamönnum. Efni ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og leitast er við að það eigi erindi við alla þá sem koma að afreksíþróttastarfi svo sem þjálfara, afreksíþróttamenn, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, lækna, íþróttafræðinga, stjórnendur í íþróttahreyfingunni og dómara. Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér í viðhengi.
Ráðstefnugjald er 12.000 kr. Veittur er 50% afsláttur fyrir nemendur (láta vita hjá hvaða skóla). Skráning fer fram á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning 537-26-500670, kt: 670169-0499. Þegar þátttökugjald er greitt í gegnum heimabanka þarf að senda kvittun á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Einnig verður hægt að greiða á staðnum.
Þessi hópur íþróttasálfræðinga kallar sig FAST (Forum for applied sport psycologists in top sport) og starfa þau öll með mörgum af fremstu íþróttamönnum evrópu. Þessi hópur hefur komið mörgum íþróttamönnum á verðlaunapall t.d. á Ólympíuleikum og öðrum stórmótum.
Þetta er frábært tækifæri fyrir okkar fremsta fólk, þjálfara, íþróttafólk, sjúkraþjálfara, fararstjóra, dómara og aðra. Það er ekki víst að svona flottur hópur af íþróttasálfræðingum verði hér á landi allir á sama tíma í nánustu framtíð. Tekist hefur að halda verðinu á ráðstefnunni niðri enda er vonast eftir góðum viðbrögðum. Við viljum sjá sem flesta af okkar topp fólki á staðnum.
Frekari upplýsingar
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 29. júní 2010 11:33 |