| Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun |
|
|
| Þriðjudagur, 15. júní 2010 15:03 |
|
Sumarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 28. júní nk. Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt. Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa. Skráning er til 25. júní á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 514-4000. Þátttökugjald er kr. 24.000. Allar frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ, Viðar Sigurjónsson, í síma 460-1467 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . |