| Hádegisfundur - kynferðisofbeldi |
|
|
| Fimmtudagur, 03. júní 2010 12:29 |
|
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur um nokkurt skeið haldið vinsæla hádegisfundi um ýmis mál sem tengjast íþróttahreyfingunni. Næsti hádegisfundur verður haldinn þriðjudaginn 8. júní nk. í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-14.00. Hann verður helmingi lengri en vant er, eða tvær klst. í stað einnar. Fundarefnið að þessu sinni er alvarleiki, umfang og eðli kynferðisofbeldis. Fyrirlesarar verða Fríða Rós Valdimarsdóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir frá STERK – samtökum gegn mannsali og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar „Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli“. Fundurinn er haldinn fyrir tilstuðlan mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Fundurinn er öllum opinn. |