| Uppskeruhátíðir hjá íþróttaskólunum |
|
|
| Mánudagur, 31. maí 2010 14:52 |
|
Íþróttaskóli fyrir 6 ára hefur verið starfræktur í 33 grunnskólum í Reykjavík í vetur. Íþróttaskólinn er rekinn af 10 íþróttafélögum og í vetur hefur u.þ.b. 90% af heildar árgangi 6 ára barna tekið þátt eða 1116 börn. Þessa dagana er Íþróttaskólinn að komast í sumarfrí og því eru í gangi uppskeruhátíðir um alla borg. Á uppskeruhátíðunum er börnunum boðið í íþróttahúsið hjá sínu íþróttafélagi þar sem farið er í ýmsa leiki og þrautir og boðið uppá eitthvað gott að borða á eftir. Meðfylgjandi mynd var tekin í ÍR heimilinu í gær þar sem hressir krakkar gæddu sér á ávöxtum og fengu blöðrur merktar félaginu. Frá og með næsta hausti verður Íþróttaskólinn í boð fyrir nemendur bæði í 1. og 2.bekk grunnskólanna í Reykjavík. Íþróttaskólinn er rekinn af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og hverfaíþróttafélögunum í Reykjavík með stuðningi frá Reykjavíkurborg. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um Íþróttaskólann. |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 28. maí 2010 15:23 |