| Hjólað í vinnuna - frábær árangur |
|
|
| Föstudagur, 28. maí 2010 13:53 |
|
Í dag voru veitt verðlaun fyrir vinnustaðakeppnina "Hjólað í vinnuna" sem stóð yfir dagana 5.-25.maí. "Hjólað í vinnuna" er hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem hefur það meginmarkmið að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Frábær árangur náðist í átakinu þetta árið því þátttakan jókst um 17,5% milli ára. Íþróttabandalag Reykjavíkur veitti annað árið í röð vinnustöðum í Reykjavík sem náðu bestri hlutfallslegri þátttöku, þ.e. sigruðu keppnina "flestir þátttökudagar", skemmtileg og hreyfihvetjandi verðlaun. Keppt var í sjö stærðarflokkum fyrirtækja og voru reykvískir sigurvegarar eftirfarandi. Arion banki Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins Mannvit Matís ohf Grandaskóli Rannsóknarþjónustan Sýni ehf Siglunes Það var Gígja Gunnarsdóttir, formaður Útbreiðslusviðs Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem afhendi liðstjórum reykvísku vinnustaðanna verðlaunin.
Nánari upplýsingar um "Hjólað í vinnuna" má finna á vef verkefnisins hjoladivinnuna.is. |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 28. maí 2010 14:24 |