| Vel heppnuð Finnlandsferð |
|
|
| Föstudagur, 28. maí 2010 10:48 |
|
Hópur reykvískra ungmenna á aldrinum 12-14 hefur dvalið í Helsinki þessa vikuna ásamt þjálfurum og fararstjórum þar sem hópurinn tók þátt í Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna. Keppt var í frjálsum íþróttum, knattspyrnu drengja og körfuknattleik stúlkna. Ungmennin stóðu sig vel á mótinu og voru sér og sínum til sóma innan vallar sem utan. Reykvísku frjálsíþróttaliðin urðu bæði í 2.sæti á mótinu. Stúlkurnar voru með 3860,6 stig, rétt á eftir sigurvegurunum frá Helsinki. Stokkhólmur varð svo í þriðja sæti með 3521,4 stig. Drengirnir voru með 2533,6 í öðru sætinu en sigurvegararnir voru Stokkhólmur með 3666,8 stig. Í þriðja sæti varð lið Osló með 3483 stig. Nær allir reykvísku þátttakendurnir voru að bæta sinn besta persónulega árangur sem er náttúrulega alltaf stærsti sigurinn. Gunnar Ingi Harðarson, ÍR-ingur og nemi í Laugalækjarskóla, stóð sig best frjálsíþróttadrengjanna en hann sigraði í þremur greinum, 100 m hlaupi, langstökki og hástökki. Þá varð hann í öðru sæti í 800 m hlaupi og þriðja sæti í kúluvarpi. Hjá stúlkunum náði Aníta Hinriksdóttir, ÍR-ingur og nemi í Hagaskóla einna bestum árangri en hún sigraði í 800 metra hlaupi. Tvær reykvískar stúlkur til viðbótar náðu verðlaunasætum en það voru þær Thea Imani Sturludóttir, UMSE og nemi í Ingunnarskóla, sem varð í 3.sæti í hástökki og Bogey Ragnheiður Leósdóttir, ÍR-ingur og nemi í Breiðholtsskóla, sem varð í 2.sæti í kúluvarpi. Reykjavíkurúrvalið í körfuknattleik stúlkna varð í 4.sæti á mótinu í Helsinki. Sigurvegari körfuknattleikskeppninnar var stúlkna lið Stokkhólms en Helsinki varð í öðru sæti og Kaupmannahöfn í því þriðja. Lið Osló varð síðan í fimmta og síðasta sæti. Reykjavísku stúlkurnar sigruðu lið Osló örugglega og voru hársbreidd frá því að sigra bronshafana frá Kaupmannahöfn en töpuðu hinum tveimur viðureignum sínum. Knattspyrnulið Reykjavíkur varð í 3.sæti í knattspyrnukeppni drengja. Sigurvegari keppninnar var lið Stokkhólms sem var feiki sterkt og sigraði allar sínar viðureignir örugglega. Í öðru sæti var lið Kaupmannahafnar, í fjórða sæti Osló og í 5. og síðasta sæti lið Helsinki. Reykvísku strákarnir sigruðu eitt lið, gerðu eitt jafntefli og töpuðu tveimur leikjum. Hópurinn er nú á heimleið eftir viðburðaríka og skemmtilega ferð. Áætlað er að hópurinn komi í Laugardalinn þar sem allir verða sóttir af sínum fjölskyldum um kl.17.30. Smellið hér til að skoða myndir frá mótinu og hér til að skoða lista yfir leikmenn, þjálfara og fararstjóra í Reykjavíkurliðinu.
|
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 03. júní 2010 14:34 |