Forsíða Fréttasafn ÍBR Aníta sigraði í 800 m hlaupinu
Aníta sigraði í 800 m hlaupinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 27. maí 2010 14:54

Síðustu greininni í frjálsum íþróttum á Grunnskólamóti Höfðuborga Norðurlandanna, 800 metra hlaupi var að ljúka rétt í þessu. Reykvíski hópurinn stóð sig vel en Aníta Hinriksdóttir, ÍR-ingur og nemi í Hagaskóla, sigraði í stúlknaflokki og Gunnar Ingi harðarson, ÍR-ingur og nemi í Laugalækjarskóla, varð í öðru sæti í drengjaflokki.

Árangur reykvísku ungmennanna var eftirfarandi:

800 m hlaup stúlkur
1. Aníta 2:18,1
6. Rannveig 2:34,7
7. Thelma Lind 2:35,3
8. Thea Imani 2:35,9
12. Sigríður 2:41,5
20. Auður María 2:47,5
23: Bogey 2:48,9
27. Gréta Sóley 2:52,7

800 m hlaup drengir
2. Gunnar Ingi 2:15,1
9. Atli Snær 2:25,4
12. Skúli 2:29,1
14. Anthony 2:30,8
26. Jón Gunnar 2:40,0
29. Guðbjartur 2:41,4
35. Hans Holm 2:47,1
36. Símon 2:47,5

Úrslit í stigakeppni frjálsra íþrótta liggja ekki fyrir fyrr en í kvöld. Fyrir 800 metra hlaupið voru bæði drengja og stúlkna lið Reykjavíkur í 2.sæti keppninnar.

Síðast uppfært: Föstudagur, 28. maí 2010 00:15
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700