Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykjavík í 2.sæti í frjálsum
Reykjavík í 2.sæti í frjálsum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 27. maí 2010 10:51

Reykjavíkurúrvalinu í frjálsum íþróttum hefur gengið vel á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna síðustu daga og náðu sérstaklega góðum árangri í morgun. Þá var keppt í langstökki og kúluvarpi pilta og hástökki stúlkna.

Gunnar Ingi Harðarson, ÍR-ingur og nemi í Laugalækjarskóla, sigraði í langstökki þegar hann stökk 5,74 metra. Þetta er þriðja greinin sem Gunnar Ingi sigrar í á mótinu. Hann náði einnig góðum árangri í kúluvarpi þegar hann kastaði kúlunni 10,61 metra og varð í 3.sæti. Hjá stúlkunum náði Thea Imani Sturludóttir, UMSE og nemi í Ingunnarskóla, bestum árangri í morgun þegar hún stökk 1,51 metra í hástökki og varð í 3.sæti.

Drengirnir hafa allir verið að bæta sinn persónulega árangur og stúlkurnar flestar líka. Nú þegar aðeins ein grein er eftir, 800 m hlaup, eru bæði stúlkna og drengja liðið í 2.sæti stigakeppninnar. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir árangur reykvísku ungmennanna í keppni morgunsins.

Langstökk drengja
1. Gunnar Ingi 5,74m
8. Atli Snær 5,09m
9. Guðbjartur 5,05m
13. Anthony Þórir 4,90m
17. Jón Gunnar 4,82 m
18. Hans Holm 4,81 m
23. Skúli 4,66m
37. Simon Eldon 4,28m

Kúluvarp drengja (4kg)
3. Gunnar Ingi 10,61m
7. Jón Gunnar 9,40
10. Guðbjartur 9,10
13. Atli Snær 8,61
19. Anthony Þórir 8,14
33. Skúli 7,19
35. Simon Eldon 7,05
36. Hans Holm 6,98
Sigurvegarinn kastaði 12,51 m

Hástökk stúlkna
3. Thea Imani 1,51m
4. Bogey Ragnheiður 1,51m
5. Gréta Sóley 1,45
6. Auður María 1,45
8. Thelma Lind 1,39
14. Rannveig Rögn 1,39
33. Aníta 1,20m
37. Sigríður 1,20
Sigurvegarinn stökk 1,54m

Smellið hér til að skoða árangur reykvísku keppendanna frá því í gær.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 27. maí 2010 11:54
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700