Forsíða Fréttasafn ÍBR Tap í körfu og knattspyrnu
Tap í körfu og knattspyrnu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 27. maí 2010 10:22

Síðasti keppnisdagur Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna er í dag. Bæði Reykjavíkurúrval stúlkna í körfuknattleik og drengja í knattspyrnu töpuðu sínum leikjum í morgun.

Körfuknattleiksstúlkurnar léku gegn heimastúlkum í Helsinki sem sigruðu 59-20. Reykvísku stúlkurnar náðu sér aldrei almennilega á skrið í leiknum og því var sigur Helsinki nokkuð öruggur.

Knattspyrnudrengirnir mættu liði Stokkhólms í morgun. Reykvísku strákarnir lentu undir strax í byrjun þegar Svíarnir komust í 2-0 eftir 4 mínútur. Þá datt botninn úr spilinu hjá okkar drengjum og eftirleikur Svía var fremur auðveldur. Stokkhólmur sigraði leikinn 8-0 en þeir munu vera með lang sterkasta liðið á mótinu.

Síðar í dag taka allir keppendur í knattspyrnu og körfuknattleik þátt í boðhlaupi milli borganna. Í kvöld verða afhend viðurkenningarskjöl og slegið upp diskóteki.

Dagskrá reykvíska hópsins

Nafnalisti reykvíska hópsins

Myndir af reykvísku keppendunum

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 27. maí 2010 11:58
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700