| Grunnskólamótið - Samantekt annars dags |
|
|
| Miðvikudagur, 26. maí 2010 11:09 |
|
Reykjavíkurliðið sem statt er á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna í Helsinki er í sæluvímu eftir gott gengi í keppnum dagsins. Bæði knattspyrnuliðið og körfuknattleiksliðið sigruðu í sínum viðureignum gegn Osló í dag. Þá gekk einnig vel í frjálsum íþróttum því Gunnar Ingi Harðarson sigraði í hástökki drengja og stúlknaliðið í frjálsum er í 2.sæti stigakeppni mótsins. Það er fallegt veður í Helsinki í dag, þurrt og bjart. Nú er hópurinn á leið í heimsókn í ráðhúsið og fer síðan í miðbæjarrölt og tívolí. Allir eru frískir og ríkir mikil spenna og gleði í hópnum. Keppni heldur áfram á morgun og má sjá nákvæmar tímasetningar í dagskránni hér að neðan. Dagskrá reykvíska hópsins Nafnalisti reykvíska hópsins Myndir af reykvísku keppendunum
|