| Gott gengi í frjálsum |
|
|
| Miðvikudagur, 26. maí 2010 10:10 |
|
Reykjavíkurúrvalinu í frjálsum íþróttum gengur vel á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna sem fram fer í Helsinki þessa dagana. Í dag var keppt í hástökki drengja og kúluvarpi og langstökki stúlkna. Gunnar Ingi Harðarson, ÍR-ingur og nemi í Laugalækjarskóla sigraði í hástökki drengja þegar hann stökk 1,67 m. Gunnar Ingi sigraði einnig í 100 m hlaupi í gær. Í kúluvarpi stóð Bogey Ragnheiður Leósdóttir, ÍR-ingur og nemi í Breiðholtsskóla, sig best reykvísku stúlknanna. Hún kastaði kúlunni lengst 10,58 metra sem var annað lengsta kast dagsins. Thelma Lind Kristjánsdóttir, ÍR-ingur og nemi í Breiðholtsskóla, stóð sig best reykvísku stúlknanna í langstökki þegar hún stökk 4,92 metra. Stökkið skilaði Thelmu fimmta sætinu í langstökkskeppninni. Staðan í stigakeppni stúlkna í frjálsum íþróttum eftir þrjár greinar er sú að Helsinki leiðir með 2382,2 stig og Reykjavík er í öðru sæti með 2269,1 stig. Lið Stokkhólms er í þriðja sæti með 2092,9 stig, Osló í fjórða með 2040,9 og Kaupmannhöfn rekur lestina með 1993,2 stig. Upplýsingar um stöðu í stigakeppni drengja hefur ekki borist ennþá. Frjálsíþróttakeppnin heldur áfram á morgun en þá keppa strákarnir í kúluvarpi og langstökki en stelpurnar í hástökki fyrir hádegi. Eftir hádegi á morgun keppa svo allir í 800 metra hlaupi. Neðangreint er yfirlit yfir árangur reykvísku ungmennanna í dag Hástökk drengja Langstökk stúlkna Kúluvarp stúlkna |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 27. maí 2010 11:38 |