| Reykjavík sigraði Osló |
|
|
| Miðvikudagur, 26. maí 2010 07:50 |
|
Úrvalslið Reykjavíkur í knattspyrnu drengja lék gegn liði Osló í morgun á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna sem fram fer í Helsinki þessa vikuna. Reykvíkingar sigruðu leikinn örugglega 3-0 og voru yfir í hálfleik 1-0. Hilmir Orri Helgason, ÍR-ingur og nemi í Seljaskóla, skoraði fyrstu tvö mörkin. Þriðja markið skoraði Magnús Pétur Bjarnason, Fjölnismaður og nemi í Víkurskóla. Á morgun leika reykvísku strákarnir sinn síðasta leik á mótinu þegar þeir mæta liði Stokkhólms kl.7:30 að íslenskum tíma. Áhugaverðar slóðir tengdar Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna 2010.. Dagskrá reykvíska hópsins Nafnalisti reykvíska hópsins Myndir af reykvísku keppendunum
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 26. maí 2010 08:25 |