| Grunnskólamótið - Samantekt fyrsta dags |
|
|
| Þriðjudagur, 25. maí 2010 16:38 |
|
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlandanna fer fram í Helsinki þessa vikuna. Glæsilegur hópur 42 reykvískra ungmenna á aldrinum 12-14 ára tekur þátt í mótinu ásamt fylgdarliði. Mótið var sett í morgun við hátíðlega athöfn. Frjálsar íþróttir drengja og stúlkna Reykvíska frjálsíþróttaliðið er skipað 8 stúlkum og 8 drengjum á aldrinum 12-14 ára og keppir í fimmtarþraut á mótinu í Helsinki. Fyrsta grein keppninnar er 100 metra hlaup sem fram fór í morgun. Þar gekk reykvísku krökkunum vel. Gunnar Ingi Harðarson, ÍR-ingur og nemi í Laugalækjarskóla, kom fyrstur allra í mark á 12 sekúndum. Annar í mark í drengjaflokki var einnig Reykvíkingur, Guðbjartur Bjarnason, ÍR-ingur og nemi í Breiðholtsskóla. Fljótasta reykvíska stúlkan í keppni dagsins var Thea Imani Sturludóttir, nemi í Ingunnarskóla, en hún var 7. stúlkan í 100 metra hlaupinu. Körfuknattleikur stúlkna Reykjavíkurúrvalið í körfuknattleik stúlkna lék gegn Stokkhólmi í gær, fljótlega eftir komuna til Finnlands. Liðinu gekk vel í fyrstu tveimur leikhlutunum en misstu síðan leikinn frá sér og töpuðu 78-26. Í morgun mættu stúlkurnar svo liði Kaupmannahafnar. Leikurinn var jafn og spennandi og leiddi lið Reykjavíkur mestan tímann. Á æsispennandi lokamínútum náðu Kaupmannahafnarstúlkurnar þó að síga framúr og sigruðu naumlega 45-43. Knattspyrna drengja Knattspyrnuúrval drengja í Reykjavík spilaði tvo leiki í dag. Fyrri leikurinn var gegn liði Kaupmannahafnar sem endaði með 2-2 jafntefli. Það var Árni Elvar Árnason, sem leikur með Leikni og er nemandi í Hólabrekkuskóla, sem skoraði bæði mörk Reykjavíkur. Síðari leikurinn var gegn heimamönnum í Helsinki. Leikinn sigruðu heimamenn 1-0. Vel fer um hópinn í Finnlandi og eru allir þátttakendur búnir að standa sig vel, innan vallar sem utan. Keppni heldur áfram á morgun. Smellið hér til að skoða dagskrá. Myndir frá fyrstu tveimur keppnisdögum má nálgast með því að smella hér.
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 26. maí 2010 08:25 |