| Tap gegn Helsinki |
|
|
| Þriðjudagur, 25. maí 2010 14:28 |
|
Reykjavíkurúrvalið í knattspyrnu drengja beið lægri hlut fyrir Finnum rétt eftir hádegi í dag á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna. Leikurinn fór 1-0 fyrir Finnana sem skoruðu í fyrri hálfleik.
Keppni er lokið í dag en verður áfram haldið á morgun. Í kvöld er sameiginleg kvöldvaka allra keppenda. Samkvæmt upplýsingum frá fararstjórum hefur reykvíski hópurinn verið til fyrirmyndar á mótinu. Allir leggja sig fram og eru sér og sínum til sóma. Smellið hér til að skoða myndir af keppendum. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. maí 2010 14:45 |