Forsíða Fréttasafn ÍBR Góður árangur í 100 m hlaupinu
Góður árangur í 100 m hlaupinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 25. maí 2010 11:14

Frjálsíþróttakrakkarnir sem taka þátt í fimmtarþraut á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna kepptu í sinni fyrstu grein í morgun, 100 m hlaupi. Als kepptu 80 keppendur þar af 16 frá Reykjavík. Reykvísku krökkunum gekk mjög vel í 100 m hlaupinu og áttu tvo fyrstu í mark í drengjaflokki.

Strákar - Reykjavík
1. Gunnar Ingi Harðarson 12,0
2. Guðbjartur Bjarnarson 12,3
6. Atli Snær Valdimarsson 12,5
10. Jón Gunnar Björnsson 13,0
21. Antony Þórir Santos 13,4
28. Hans Holm Aðalsteinsson 13,8
30. Skúli Gunnarsson 14,1
38. Simon Eldon Ívarsson 14,7

Besti tími drengja var 12,0 og lakasti timi 14,9.
 
Stelpur - Reykjavík
7. Thea Imani Sturludóttir 13,3
12. Rannveig Rögn Leifsdóttir 13,5
12. Thelma Lind Kristjánsdóttir 13,5
18. Bogey Ragnheiður Leósdóttir 13,7
18. Sigríður Karlsdóttir 13,7
27. Aníta Hinriksdóttir 14,0
35. Gréta Sóley Arngrímsdóttir 14,2
35. Auður María Óskarsdóttir 14,2

Besti tími stúlkna var 12,7 og lakasti tími 15,1.

Frjálsíþróttakeppnin heldur áfram á morgun en þá keppa drengirnir í hástökki og stúlkurnar í kúluvarpi og langstökki.

Sólin er annars farin að skína í Finnlandi við mikla ánægju viðstaddra. Að sögn fararstjóra standa krakkarnir sig öll með sóma.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 26. maí 2010 08:29
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700