| Góðar móttökur í Finnlandi |
|
|
| Þriðjudagur, 25. maí 2010 10:18 |
|
Reykvíski hópurinn sem tekur þátt í Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna hefur fengið góðar móttökur í Finnlandi. Krakkarnir gista í 2-4 manna herbergjum og fer mjög vel um alla. Dagurinn í gær var langur og strembinn. Lagt var af stað úr Laugardalnum eld snemma og komið á áfangastað seinni part dags. Þá voru allir boðnir velkomnir og keppni í körfuknattleik hófst stuttu síðar. Mjög mikil spenna var hjá krökkunum í gær og sofnuðu allir örþreyttir í fyrra fallinu í gærkveldi. Tveir leikmenn í hópnum voru lítilsháttar veikir í gær en líður betur í dag og geta báðir keppt eitthvað. Mótssetning fór fram í morgun í svölu veðri en þurru. Mótssetning er ávalt hátíðleg stund en þá ganga liðin inná íþróttavöll með fána sína. Eftir keppni seinni partinn í dag verður farið í sund og síðan haldin sameiginleg kvöldvaka allra landanna í kvöld. Smellið hér til að skoða nákvæma dagskrá hópsins í Finnlandi. Athugið að tímasetningar eru gefnar upp á staðartíma. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. maí 2010 14:45 |