Forsíða Fréttasafn ÍBR Æsispennandi gegn Köben í körfunni
Æsispennandi gegn Köben í körfunni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 25. maí 2010 10:00

Reykjavíkurúrval stúlkna í körfuknattleik lék í morgun sinn annan leik á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna. Leikið var gegn liði Kaupmannahafnar. Reykvísku stelpurnar voru í allt öðrum gír heldur en í gær gegn Stokkhólmi enda fengu þær góðan nætursvefn og ekki ný komnar úr löngu ferðalagi eins og í gær.

Leikurinn var jafn og spennandi og leiddi lið Reykjavíkur mestan tímann. Á æsispennandi lokamínútum náðu Kaupmannahafnarstúlkurnar þó að síga framúr og sigruðu naumlega 45-43.

Næsti leikur körfuknattleiksstúlknanna er á morgun miðvikudag en þá leika þær gegn Osló kl .7:00 að íslenskum tíma.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700