| Jafntefli hjá knattspyrnustrákunum |
|
|
| Þriðjudagur, 25. maí 2010 09:56 |
|
Fyrsta leik Reykjavíkurúrvals drengja í knattspyrnu á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna lauk fyrir stundu. Reykjavík lék gegn Kaupmannahöfn í þessum fyrsta leik sem endaði með 2-2 jafntefli. Í hálfleik var staðan 1-0 fyrir Kaupmannahöfn. Það var Árni Elvar Árnason, sem leikur með Leikni og er nemandi í Hólabrekkuskóla, sem skoraði bæði mörk Reykjavíkur. Knattspyrnudrengirnir mæta liði Helsinki kl. 12:30 í dag. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. maí 2010 10:16 |