| Tap gegn Stokkhólmi |
|
|
| Mánudagur, 24. maí 2010 19:26 |
|
Reykjavíkurúrval stúlkna í körfuknattleik beið lægri hlut fyrir liði Stokkhólms á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna í kvöld. Leikurinn fór 78-26. Reykvíska liðið spilaði fyrstu tvo leikhlutana vel en missti síðan leikinn algerlega úr höndum sér. Frjálsíþróttakrakkarnir hefja keppni kl.6:50 að íslenskum tíma í fyrramálið þegar þau keppa í 100 m hlaupi. Kl. 8:15 leika körfuknattleiksstúlkurnar sinn annan leik í mótinu við Kaupmannahöfn. Knattspyrnudrengirnir leika einnig gegn Kaupmannahöfn í fyrramálið en þeirra leikur hefst kl.8:30. |