Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykjavíkurliðið komið til Finnlands
Reykjavíkurliðið komið til Finnlands Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 24. maí 2010 17:05

Lið Reykjavíkur, 45 manns, ásamt fylgdarliði sem tekur þátt í Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna næstu daga er komið til Finnlands. Ferðin gekk vel. Flogið var til Helsinki og síðan keyrt með rútu til Pajulathi sem er svæðið þar sem gist er og keppt á.

Samkvæmt upplýsingum frá fararstjórum voru krakkarnir mjög spenntir en þó prúðir. Næstu dagar verða án efa mikið ævintýri fyrir þau enda spennandi keppni framundan og fullt af nýju fólki til að kynnast. Einhverjir í hópnum voru að fara í sína fyrstu ferð til útlanda í dag.

Keppni hefst strax í kvöld þegar reykvísku stelpurnar keppa við Stokkhólm í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl.20:00 í Finnlandi sem er kl.17:00 að íslenskum tíma. Upplýsingar um úrslit verða settar hér inná ibr.is um leið og þær liggja fyrir.

Síðast uppfært: Mánudagur, 24. maí 2010 19:26
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700