| Norræni ungmennafundurinn - þátttakendur valdir |
|
|
| Föstudagur, 21. maí 2010 15:34 |
|
Í lok apríl var óskað eftir að aðildarfélög Íþróttabandalags Reykjavíkur myndu tilnefna ungmenni á aldrinum 18-24 ára til að taka þátt í Norræna ungmennafundinum í Árósum 2010. Alls bárust níu tilnefningar frá sjö félögum. Aðeins fjögur ungmenni komast á fundinn ár hvert og því þurftu stjórnarmenn að velja úr innsendum ábendingum. Valið var mjög erfitt því allir sem tilnefndir voru hefðu orðið glæsilegir fulltrúar Reykjavíkur. Ákveðið var að velja þá einstaklinga sem höfðu mesta menntun og reynslu tengda íþróttum, íþróttaþjálfun og þátttöku í félagsstarfi tengdu íþróttum. Þeir sem valdir voru eru eftirfarandi. Þeim sem ekki voru valdir að þessu sinni er þakkaður áhuginn á verkefninu og þeir hvattir til að sækja um aftur að ári liðnu. Á Norræna ungmennafundinum koma saman ungmenni frá vinabæjum Reykjavíkur á Norðurlöndunum; Aarhus, Bergen, Gautaborg og Turku. Ungmennin sitja fræðandi fyrirlestra og vinna ýmis verkefni með jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum. Markmiðið er að skapa meira samstarf milli bæjanna og gefa ungmennunum færi á að læra eitthvað nýtt auk þess að læra hvort af öðru. Þema fundarins þetta árið eru íþróttir og innflytjendur. |