Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykvíski hópurinn undirbýr sig fyrir Finnlandsför
Reykvíski hópurinn undirbýr sig fyrir Finnlandsför Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 19. maí 2010 12:37

Reykjavíkurliðið á fundi í AusturbergiGrunnskólamót höfuðborga Norðurlanda fer fram í Helsinki í Finnlandi dagana 24.-28.maí næstkomandi. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni Pajulahti. Keppt verður í frjálsum íþróttum drengja og stúlkna, knattspyrnu drengja og körfuknattleik stúlkna.

Reykvíski hópurinn hittist í Íþróttahúsinu við Austurberg í gær. Farið var í ýmsa leiki svo að hópurinn næði að kynnast vel fyrir ferðina. Einnig voru afhendir búningar og farið yfir ferðaáætlun. Fararstjórar hópsins þau Brynja og Steinn voru mjög ánægð með kvöldið og sögðu að hópurinn hefði náð vel saman.

Upplýsingar um gengi reykvíska liðsins í mótinu verða settar hér inná ibr.is um leið og fregnir berast frá Helsinki. Eftirfarandi er keppnisdagskrá hópsins miðað við íslenskan tíma. Nánari dagskrá með staðartímasetningum má einnig finna með því að smella hér.

Mánudagurinn 24.maí
kl. 17:00   Körfuknattleikur – leikið gegn Stokkhólmi

Þriðjudagurinn 25.maí
kl.06:50 Frjálsar íþróttir – 100 m hlaup
kl.08:15 Körfuknattleikur – leikið gegn Kaupmannahöfn
kl.08:30 Knattspyrna – leikið gegn Kaupmannahöfn
kl.12:30 Knattspyrna – leikið gegn Helsinki

Miðvikudagurinn 26.maí
kl.05:30 Knattspyrna – leikið gegn Osló
kl.05:30 Frjálsar íþróttir – kúluvarp/langstökk stúlkur, hástökk drengir
kl.05:45 Körfuknattleikur – leikið gegn Osló

Fimmtudagurinn 27.maí
kl.06:00 Frjálsar íþróttir – hástökk stúlkur, kúluvarp/langstökk drengir
kl.06:00 Körfuknattleikur – leikið gegn Helsinki
kl.07:30 Knattspyrna – leikið gegn Stokkhólmi
kl.11:30 Frjálsar íþróttir – 800 m hlaup
kl.15:30 Boðhlaup allra keppenda í knattspyrnu og körfuknattleik

Smellið hér til að skoða lista yfir hópinn sem tekur þátt í Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna 2010 fyrir hönd Reykjavíkur.

Hér má finna nánari upplýsingar um þátttöku Reykjavíkur í mótinu undanfarin ár.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. maí 2010 14:48
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700