Forsíða Fréttasafn ÍBR Góð mæting á formannafund
Góð mæting á formannafund Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 11. maí 2010 13:59

Ingvar Sverrisson - formaður Íþróttabandalags ReykjavíkurFöstudaginn 7.maí síðastliðinn var haldinn formannafundur Íþróttabandalags Reykjavíkur. Formaður Íþróttabandalagsins, Ingvar Sverrisson, stýrði fundinum sem haldin var í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (mynd). Góð mæting var á fundinn en fulltrúar tæplega fjörtíu félaga tóku þátt. Ársreikningur Íþróttabandalags Reykjavíkur fyrir árið 2009 var kynntur fundarmönnum ásamt upplýsingum um helstu verkefni bandalagsins síðan á síðasta þingi.

Á seinni hluta fundar fluttu fulltrúar þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningum í vor stutt erindi um áherslur flokkanna í tengslum við íþróttir á næsta kjörtímabili. Fulltrúar flokkanna voru Dagur B. Eggertsson, Samfylkingu, Friðrik Hansen Guðmundsson, Reykjavíkurframboðinu, Haraldur Baldursson, Frjálslyndaflokknum, Hermann Valsson, Vinstri grænum, Ingvar Mar Jónsson, Framsóknarflokknum, og Kjartan Magnússon, Sjálfstæðisflokknum. Enginn fulltrúi mætti frá Besta flokknum né Framboði um heiðarleika og almannahagsmuni. Eftir stutt erindi voru nokkuð fjörugar pallborðsumræður þar sem fundarmönnum gafst kostur á að beina spurningum sínum til fulltrúa flokkanna.

Að fundi loknum var fundarmönnum boðið í léttar veitingar og spjall á Cafe Easy.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. maí 2010 14:04
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700