| Norrænn ungmennafundur - ábendingar berist fyrir 10.maí |
|
|
| Þriðjudagur, 04. maí 2010 13:55 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur leitar að tveimur strákum og tveimur stelpum á aldrinum 18-24 ára til að taka þátt í Norræna ungmennafundinum í Árósum 2010. Ungmennin þurfa að vera virkir þjálfarar eða aðstoðarþjálfarar hjá íþróttafélögum í Reykjavík og mega gjarnan hafa reynslu af því að starfa með innflytjendum í íþróttastarfi auk þess að skilja eitt norðurlandamál. Reykjavík á fjóra vinabæi á Norðurlöndunum; Aarhus, Bergen, Gautaborg og Turku. Til margra ára hafa fulltrúar þessara vinabæja hist á árlegum íþróttasamkomum. Í flest skiptin hefur verið um að ræða lítið íþróttamót þar sem unglingar keppa sín á milli í ýmsum íþróttagreinum auk sameiginlegra funda fulltrúa sem starfa að íþróttamálum á hverjum stað. Íþróttabandalag Reykjavíkur er fulltrúi Reykjavíkur í þessu vinabæjarsamstarfi og hefur skipulagt og haldið utan um ferðir og mótahald fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Í fyrra var tekið upp nýtt fyrirkomulag í þessu vinabæjarsamstarfi sem er þannig háttað að hver bær sendir fjögur ungmenni á aldrinum 18-24 ára til fundar auk eins fulltrúa sem starfar að skipulagi íþróttamála í bænum. Ungmennin sitja fræðandi fyrirlestra og vinna ýmis verkefni með jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum. Markmiðið er að skapa meira samstarf milli bæjanna og gefa ungmennunum færi á að læra eitthvað nýtt auk þess að læra hvort af öðru. Þetta nýja fyrirkomulag tókst vel í fyrra og var reykvíski hópurinn mjög ánægður með ferðina en þá var fundurinn haldinn í Turku í Finnlandi. Aðal umfjöllunarefni fundarins var „Hvernig er hægt að fá fleira ungt fólk til að starfa við íþróttir hjá íþróttafélögum?“. Í ár verður Norræni ungmennafundurinn haldinn í Árósum í Danmörku. Umfjöllunarefnið verður íþróttir og innflytjendur. Um er að ræða dagana 26.-29.ágúst auk hugsanlegra ferðadaga fyrir og eftir fundina. Gist verður í tveggja manna herbergjum á www.cabinn.com. Sömu daga og norræni ungmennafundurinn fer fram í Árósum heldur borgin árlega menningarviku þar sem margt spennandi verður á dagskránni m.a. tónlist, leikhús o.fl. sem ungmennunum gefst kostur á að taka þátt í. Nánari upplýsingar um menningarvikuna má nálgast á heimasíðunni www.aarhusfestuge.dk. Ungmennin eða félög þeirra bera engan kostnað af ferðum, gistingu eða fæði í ferðinni. Vinnutap fæst hinsvegar ekki greitt ef svo ber undir. Íþróttabandalag Reykjavíkur hvetur sem flest félög til að senda inn ábendingar um ungmenni sem gætu verið góðir fulltrúar Reykjavíkur á Norræna ungmennafundinum 2010. Ábendingar óskast sendar inn á einföldu eyðublaði sem má nálgast með því að smella hér. Frestur til að skila inn ábendingum rennur út 10.maí en valið verður úr ábendingum fyrir lok maí mánaðar. |