Forsíða Fréttasafn ÍBR Hjólað í vinnuna 2010
Hjólað í vinnuna 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 26. apríl 2010 13:17

Fræðslu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ísland á iði, stendur fyrir ,,Hjólað í vinnuna”, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land dagana 5. - 25. maí. Meginmarkmið ,,Hjólað í vinnuna” er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir þeir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem taka strætó geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin er til og frá stoppistöð.

Íþróttabandalag Reykjavíkur hvetur alla vinnustaði í Reykjavík til að taka þátt í Hjólað í vinnuna.  Í tilefni af verkefninu mun Íþróttabandalag Reykjavíkur veita þeim vinnustöðum í Reykjavík sem ná bestri hlutfallslegri þátttöku, þ.e. sigra flokkinn „flestir þátttökudagar“, skemmtileg og hreyfihvetjandi verðlaun.

Reykvískir sigurvegarar í flokkunum 3-9 starfsmenn og 10-29 starfsmenn fá gjafabréf í skemmtiskokk Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2010 fyrir alla starfsmenn sem taka þátt í Hjólað í vinnuna. Sigurvegarar í fjölmennari starfsmannaflokkum keppninnar fá gjafabréf í Skautahöllina í Laugardal fyrir alla starfsmenn sem taka þátt. Verðlaunin verða afhent við lokaathöfn Hjólað í vinnuna þann 28. maí næstkomandi.

Nánari upplýsingar og skráning í Hjólað í vinnuna eru á heimasíðu verkefnisins, hjoladivinnuna.is.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700