Forsíða Fréttasafn ÍBR 4079 börn fá sumargjafir
4079 börn fá sumargjafir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 15:43

Af gömlum og góðum íslenskum sið fagnar Íþróttabandalag Reykjavíkur sumarkomunni og gefur börnum í grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir. Sumargjafaverkefnið hófst árið 2005 þegar nemendur í 2.bekk fengu sippuband. Það hefur síðan verið endurtekið ár hvert og hafa þrír árgangar bæst við í hóp þeirra sem fá gjafir frá Íþróttabandalaginu. 

Tilgangur sumargjafanna er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt. Það er von Íþróttabandalags Reykjavíkur að börnin verði ánægð með gjafirnar og að kennarar og foreldrar þeirra hvetji þau til að nota þær.

Börn í öðrum bekk fá sippuband og börn í þriðja bekk fá bolta. Með sippuböndum og boltum fylgir bæklingur með æfingum og leikjum. Þá fá fimmtu bekkingar sundkort sem gildir í þrjú skipti í sundlaugar Reykjavíkur ásamt bækling með hugmyndum að sundleikjum og upplýsingum um opnunartíma sundlauganna í Reykjavík.

Alls fá 4079 börn í 39 grunnskólum í Reykjavík gjafir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur þetta árið. Sumargjafirnar verða afhendar nemendum skólanna í dag og á morgun.

Þess má geta að öllum börnum í 1.bekk í grunnskólum Reykjavíkur stendur til boða að taka þátt í Íþróttaskóla allan veturinn á vegum ÍBR, ÍTR og íþróttafélaganna í Reykjavík. Íþróttaskólinn er því nokkurskonar sumargjöf 1.bekkinga. Rúmlega 1100 börn eru skráð í Íþróttaskóla fyrir 1.bekk í vetur sem er um 90% af öllum árganginum. 4.bekkingar fengu líka gjöf á þessu skólaári því í tengslum við fyrsta vetrardag þann 24.október síðastliðinn voru þeim afhendir boðsmiðar á skauta, samtals 1.450 nemendur.

 

Meðfylgjandi myndir voru teknar af glöðum og kátum nemendum í Álftamýrarskóla í dag þegar þau fengu gjafirnar sínar afhendar.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. apríl 2010 15:53
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700