|
Ásdís Hjálmsdóttir Íþróttamaður Reykjavíkur |
|
|
|
Fimmtudagur, 18. febrúar 2010 17:35 |
|
Íþróttamaður Reykjavíkur 2009 er frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir úr Glímufélaginu Ármanni. Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, afhendi Ásdísi farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg við hátíðlega athöfn af þessu tilefni í Höfða í dag. Ásdís bætti Íslandsmet sitt á árinu og er í 22.sæti á heimslistanum í spjótkasti.
Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur staðið fyrir vali á Íþróttamanni Reykjavíkur og er þetta því í 31. sinn sem Íþróttamaður Reykjavíkur er kjörinn. Smellið hér til að skoða lista yfir íþróttamenn Reykjavíkur frá upphafi.
Tíu aðrir afreksmenn fengu einnig viðurkenningar fyrir árangur sinn í Höfða í dag sem afhendar voru af formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvari Sverrissyni. Íþróttamennirnir eru þau:
- Anna Soffía Víkingsdóttir, júdókona úr Ármanni
- Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður úr Skotfélagi Reykjavíkur
- Eyþór Þrastarson, sundmaður úr Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík
- Guðmundur Stephensen, borðtennismaður úr Víkingi
- Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni
- Jakob Jóhann Sveinsson, sundamaður úr Sundfélaginu Ægi
- Katrín Jónsdóttir, knattspyrnukona úr Knattspyrnufélaginu Val
- Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr Knattspyrnufélagi Reykjavíkur
- Sonja Sigurðardóttir, sundkona úr Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík
- Þormóður Jónsson, júdómaður úr Júdófélagi Reykjavíkur
Þá voru veittir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóði Reykjavíkur að upphæð krónur 7.700.000. Kjartan Magnússon formaður ÍTR afhendi styrkina en þeir fóru til 42 einstaklinga, íþróttafélaga- og deilda. Veittir voru styrkir á bilinu 100.000-900.000 krónur.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 18. febrúar 2010 18:03 |