Sumarliðar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 12. febrúar 2010 11:40

Íþrótta- og æskulýðsfélög eiga möguleika á að sækja um að fá starfsmenn til starfa á námskeiðum fyrir börn og ungmenni í Reykjavík. Ráðningarsamningur er gerður milli Reykjavíkurborgar og viðkomandi starfsmanns og eru laun samkvæmt samkomulagi borgarinnar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg greiðir laun og launatengd gjöld í allt að 8 vikur en ekki er greidd yfirvinna og/eða fæðsifé. Starfsmaður þarf að skila inn umsókn um sumarstarf hjá Reykjavíkurborg og hafa lögheimili í Reykjavík. Starfsmen geta sótt um eftir 1.mars.n

Félög sem vilja fá sumarliða til starfa þurfa að sækja um fyrir 1.mars á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Sótt skal um á sérstöku umsóknareyðublaði sem er hægt að hlaða niður með því að smella hér (50KB wordskjal). Nánari upplýsingar veita Lárus Rögnvaldur Haraldsson ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) og Magnea Sigurðardóttir ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) í síma 411 5500 eða á gegnum tölvupóst.

Tekið er mið af eftirfarandi þáttum við mat á umsóknum frá íþróttafélögum: 

  • Hefur starfið í för með sér önnur afleidd störf eða aukna þjónustu. 
  • Stærð þjónustusvæðis og fjölda þjónustuþega í hverfi. 
  • Áætluðum fjölda barna sem sækja námskeiðið 
  • Starfslýsingu og starfsumhverfi.

Íþróttabandalag Reykjavíkur hvetur aðildarfélög sín til að nýta sér þetta tilboð.

Síðast uppfært: Föstudagur, 12. febrúar 2010 13:18
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700