Forsíða Fréttasafn ÍBR Íslandsmeistarar fá viðurkenningar
Íslandsmeistarar fá viðurkenningar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 08. febrúar 2010 12:52

Í dag, mánudaginn 8.febrúar kl. 16:45, mun Íþróttabandalag Reykjavíkur veita um 650 reykvískum íþróttamönnum frá 13 ára aldri viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla á árinu 2009. Athöfnin fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Íþróttafólkið sem fær viðurkenningar í dag kemur frá 31 félagi í Reykjavík. Um er að ræða Íslandsmeistaratitla í 40 mismunandi íþróttagreinum og ennþá fleiri keppnisgreinum. Það eru um 240 konur og 410 karlar sem hljóta viðurkenningarnar.

Á undan athöfninni spilar plötusnúðurinn Einar tónlist fyrir gesti. Eftir að gestir hafa verið boðnir velkomnir mun tvær af fremstu afrekskonum Reykjavíkur þær Ásdís Hjálmsdóttir og Helga Margrét Þorsteinsdóttir afhenda viðurkenningarnar. Áætlað er að afhendingu ljúki um kl.17.30.

Íþróttafólkið fær verðlaunagrip sem viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil sinn. Einnig á íþróttafólkið möguleika á að vinna glæsilegan Huawei 3G farsíma frá Símanum því dregið verður úr nöfnum allra Íslandsmeistaranna í lok hátíðarinnar.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700