| Strákunum okkar fagnað í Laugardalshöll |
|
|
| Mánudagur, 01. febrúar 2010 13:41 |
|
Það verður fagnaðarfundur í Laugardalshöll klukkan hálfsex í dag, en þá verður tekið á móti íslenska handboltalandsliðinu sem kemur frá Austurríki, með viðkomu í Kaupmannahöfn. Eins og flestir vita unnu íslensku strákarnir til bronsverðlauna með því að leggja Pólverja að velli, 29 - 26. Þetta er besti árangur sem íslenska landsliðið hefur náð á EM. Það eru Ríkisstjórnin, Reykjavíkurborg og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem bjóða til hátíðarinnar í dag. Þeir sem ætla að taka þátt í fagnaðinum eru hvattir til að mæta tímanlega, nota almenningssamgöngur til að komast í Höllina eða leggja bílum sínum í hæfilegri fjarlægð frá samkomustaðnum til að greiða fyrir umferð. Allar æfingar falla niður í Laugardalshöll í dag vegna fagnaðarins. |