| Lífshlaupið - Landskeppni í hreyfingu |
|
|
| Fimmtudagur, 28. janúar 2010 11:07 |
|
Skráning er hafin í Lífshlaupið, hvatningarátak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem hefst miðvikudaginn 3. febrúar og stendur til þriðjudagsins 23. febrúar. Nú þegar hafa um 40 vinnustaðir skáð sig til leiks og nokkrir skólar. Opið verður fyrir skráningu fram á síðast dag keppninnar eða til 23. febrúar. Inn á vef verkefnisins www.lifshlaupid.is er að finna ýtarlegar leiðbeiningar um skráningu og kynningarefni til þess að hvetja nemendur og samstarfsfólk til þátttöku. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í vinnustaðakeppni fyrir 16 ára og eldri, hvatningarleik fyrir grunnskóla fyrir 15 ára og yngri og einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag. Meðan á átakinu stendur er einnig í gangi hvatningarleikur ÍSÍ og Rásar 2. Leikurinn er þannig að dregið verður alla virka daga úr skráðum liðum í Popplandi hjá Heiðu og Margréti milli kl.11 og 12. Eitt lið í vinnustaðakeppninni og einn bekkur í hvatningarleik grunnskólanna fá senda til sín ferska og glæsilega ávaxtaveislu frá hollustufyrirtækinu Ávaxtabílnum. Vinningshafar miðvikudagsins 27.janúar voru liðið Oxymap í vinnustaðakeppninni og 6.GH í Hamraskóla í grunnskólakeppninni. Við hvetjum alla til þess að skrá liðið sitt strax til leiks inná vef Lífshlaupsins http://www.lifshlaupid.is/. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. janúar 2010 11:14 |