Forsíða Fréttasafn ÍBR Spennandi fyrirlestrar um helgina
Spennandi fyrirlestrar um helgina Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 13. janúar 2010 10:31

Í tengslum við Alþjóðlegu Reykjavíkurleikana sem fram fara í Laugardalnum um helgina verður boðið uppá spennandi fyrirlestra undir yfirskriftinni "Listin að sigra" eða "The Art of Winning". Fyrirlestrarnir fara fram í E sal ÍSÍ að Engjavegi 6 í Laugardal.

Fyrirlestrarnir verða á íslensku laugardaginn 16.janúar kl. 16:00-17:30. Þá munu þeir Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðingur, Róbert Magnússon, sjúkraþjálfari, og Ólafur Sæmundsson, næringafræðingur, flytja erindi.

Á sunnudeginum 17.janúar verða fyrirlestrarnir á ensku og standa þeir yfir frá kl.13.00-14.30. Viðar og Róbert verða þá aftur með erindi auk þess sem sundþjálfarinn Finn Zachariassen bætist í hópinn.

Það eru allir velkomnir á þessa fyrirlestra og er aðgangur ókeypis.

Nánari upplýsingar á rig.is.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 13. janúar 2010 14:13
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700