| Reykjavik International Games framundan |
|
|
| Mánudagur, 11. janúar 2010 10:49 |
|
Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir eða Reykjavik International Games verða haldnir í þriðja sinn um næstu helgi. Á leikunum er keppt í níu íþróttagreinum og fer keppnin að mestu fram í Laugardalnum. Tilgangur leikanna er að auka samkeppnishæfni íslenskra íþróttamanna og draga úr ferðakostnaði þeirra með því að fá sterka erlenda keppendur til leiks. Í ár eru keppendur um 2000 þar af rúmlega 300 erlendir gestir. Leikarnir standa yfir dagana 15. – 17. janúar. Opnunarhátíð verður í Laugardalslauginni föstudaginn 15. janúar sem hefst með sýningu íþróttafólksins en lýkur með sundlaugarpartíi eins og venja er. Keppni fer fram alla dagana en lokahátíðin verður á Broadway sunnudaginn 17.janúar. Á lokahátíðinni verður borðhaldi og veitingar viðurkenninga fyrir besta árangur í einstökum greinum. Hinn óviðjafnanlegi skemmtikraftur Páll Óskar mun síðan halda uppi fjörinu það sem eftir lifir kvölds. Í fyrsta skipti í ár verða fyrirlestrar á dagskrá leikanna en þeir verða haldnir í E-sal ÍSÍ og fara þeir fram á ensku og íslensku. Smellið hér til að skoða dagskrá Reykjavik International Games 2010 og hér til að skoða bækling um leikana með helstu upplýsingum um íþróttagreinarnar og viðtöl við íþróttamenn. Hugmyndin um Reykjavik International Games sprettur annarsvegar af frumkvæði forráðamanna Frjálsíþróttadeildar ÍR og Sundfélagsins Ægis sem höfðu haldið alþjóðleg mót í janúar um tveggja áratuga skeið en hinsvegar af þeirri reynslu sem varð til hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur þegar haldnir voru velheppnaðir Alþjóðaleikar ungmenna 2007 í Reykjavík (International Children´s Games). Á leikunum í ár er keppt í badminton,dansi, frjálsum íþróttum, hópfimleikum, júdó, keilu, listhlaupi á skautum, skylmingum og sundi fatlaðra og ófatlaðra. Undirbúningshópur með fulltrúa frá hverri íþróttagrein starfar allt árið en einstakir mótshlutar eru á ábyrgð einstaka félaga, sérráða og sérsambanda ÍSÍ. Opinberir bakhjarlar RIG í ár eru Orkuveita Reykjavíkur og Síminn en einnig styðja Pure Health og Litróf leikana. Heimasíða Reykjavik International Games með öllum nánari upplýsingum er rig.is. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 13. janúar 2010 10:29 |