Forsíða Fréttasafn ÍBR Ferðastyrkir - umsóknarfrestur til 11.janúar
Ferðastyrkir - umsóknarfrestur til 11.janúar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 21. desember 2009 11:22

Síðasti dagur til að sækja um ferðastyrki vegna ferða innanlands á árinu 2009 er 11.janúar næstkomandi.

Umsóknir þurfa að berast á rafrænu umsóknarsvæði á vefnum. Byrja þarf á því að stofna umsókn fyrir félagið eða deildina og síðan er hægt að byrja að færa inn ferðir. Hægt er að byrja að færa inn ferðir nú þegar og hvetjum við félögin til að byrja strax að setja inn upplýsingar. Aðeins er tekið á móti umsóknum á þessu umsóknarsvæði og ekki er hægt að taka á móti þeim eftir 11.janúar.

Öll íþróttafélög í landinu sækja um ferðastyrki til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) á áðurnefndu umskóknarsvæði. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur samið við ÍSÍ um að fá aðgang að umsóknum íþróttafélaganna í Reykjavík til að minnka vinnu félaganna við að sækja um ferðastyrki. Umsóknir sem þarna eru settar inn berast því bæði til ÍSÍ og ÍBR.

Smellið hér til að fara inná umsóknarsvæði ferðastyrkja.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700