| Afreksmál á 121 árs afmæli Ármanns |
|
|
| Fimmtudagur, 17. desember 2009 13:29 |
|
121 árs afmæli Ármanns var haldið hátíðlegt í hátíðarsal Laugabóls sunnudaginn 13. desember. Afmælisdagur félagsins er 15. desember. Hátíðin hófst með Flokkaglímu Ármanns og Skjaldarglímu Ármanns. Í skjaldarglímunni var í fyrsta skipti keppt í kvennaflokki og sigraði Anna Soffía Víkingsdóttir Ármanni keppnina. Í Skjaldarglímuhafi í ár var svo Ármenningurinn Pétur Eyþórsson. Eftir ávarp formanns voru veittir styrkir úr afrekssjóði Ármanns. Sjóðurinn var stofnaður á síðasta ári og var veitt 1.050.000 krónur úr honum að þessu sinni. Í ár voru það 16 styrkir sem var afhent okkar besta íþróttafólki, 15 einstaklingar og eitt lið. Styrkirnir voru frá 20.000 krónum á mann og mest 100.000 krónur. Efnilegasti íþróttamaður Ármanns ársins 2009 var svo opinberaður og var það frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir sem var valin að þessu sinni. Helga Margrét er 18 ára gömul og er ein efnilegasta, ef ekki efnilegasta sjöþrautarkona heims um þessar mundir. Þetta endurspeglast annars vegar í stöðu hennar á heimslista alþjóða frjálsíþróttasambandsins, þar sem hún trónir á toppi sem og af nýfengnu boði hennar til keppni í Götzis í Austurríki á næsta ári. Til Götzis er aðeins boðið bestu íþróttamönnum heims, þeim sem náð hafa yfir 6000 stigum í sjöþraut kvenna. Nú gerir mótshaldari undantekningu vegna einstaklega efnilegrar íþróttakonu, Helgu Margrétar vegna þess hve efnileg hún er. Rúsínan á pylsuendanum var svo þegar íþróttamaður Ármanns var opinberaður. En það var frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir sem hlaut titilinn íþróttamaður Ármanns árið 2009. Ásdís er nú í lok árs fremst í flokki íslenskra frjálsíþróttamanna samkvæmt lista alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Hún er í 22. sæti á heimslita í spjótkasti, raunar nær enginn íslenskur íþróttamaður í einstaklingsíþrótt að komast hærra á sínum lista en Ásdís. Hún er í 16. sæti Evrópu í sinni grein og fremst spjótkastkvenna á Norðurlöndum.
|
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 17. desember 2009 13:40 |