Forsíða Fréttasafn ÍBR ÍR úthlutar úr Magnúsarsjóði
ÍR úthlutar úr Magnúsarsjóði Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 11:48

Þann 11.nóvember síðastliðinn var úthlutað úr Magnúsarsjóði en það er menntunar- og afrekssjóður Íþróttafélags Reykjavíkur. Úthlutuninni, sem var að heildarupphæð kr. 840.000, var að þessu sinni skipt í þrjá flokka.

Frjálsíþróttadeild ÍR fékk styrk vegna ólympíuáætlunar en þeir hafa sett sér háleit markmiðið og stefna á að verða með ÍR-inga á Ólympíuleikunum 2012.

Svo var úthlutað til afreksfólks en það voru þrjár deildir sem fengu styrk að þessu sinni; Skíðadeild vegna þeirra Stefáns Inga Jóhannssonar, Einars Kristins Kristgeirssonar og Jóhönnu Auðunsdóttur. Þetta eru allt krakkar sem í landsliðinu. Júdódeild fékk styrk vegna þeirra Gísla Haraldssonar, Kjartans Magnússonar og Ásdísar Margrétar Ólafsdóttur en þau eru á leiðinni á alþjóðlegt mót í Danmörku. Körfuknattleiksdeildin fékk styrk vegna Daða Bergs Grétarssonar en hann varð Norðurlandameistari í U-18 og er mikið efni í afreksmann ásamt öllum hinum krökkunum sem fengu styrk.

Fjórir þjálfarar fengu styrki að þessu sinni en það voru þau; Erlendur Ísfeld, G. Pétur Guðmundsson, Fríða Rún Þórðardóttir og Gunnar Páll Jóakimsson en þau eru öll á leiðinni erlendis á námskeið til að auka þekkingu sína hvað þjálfun varðar.

Nánar á heimasíðu Íþróttafélags Reykjavíkur http://irsida.is/.

Síðast uppfært: Mánudagur, 16. nóvember 2009 08:46
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700