Forsíða Fréttasafn ÍBR Ánægjuvog ÍBR
Ánægjuvog ÍBR Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 00:00


ÍBR í samstarfi við Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðing úr HR, hefur hrint í framkvæmd verkefni sem snýr að því að auka ánægju iðkenda af starfinu. Verkefnið snýst að megninu til um tvo þætti:

1. Ánægjukönnun meðal iðkenda hverfafélaganna.

Dagana 28. október- 5. nóvember var spurningalistakönnun lögð fyrir iðkendur hverfafélaganna sem fæddir eru á árabilinu 1994-1996. Könnunin er viðhorfskönnun og er henni ætlað að mæla ánægju/óánægju iðkenda með íþróttastarfið og íþróttafélagið sitt. Könnunin er hluti af verkefni ÍBR sem snýr að því að leita álits iðkenda á íþróttastarfinu með það fyrir augum að auka ánægju þeirra af starfinu. Könnunin er nafnlaus og ekki er unnt að rekja svör til einstaklinga. 

2. Kynning og leiðarvísir félaganna.

Í lok nóvember mun hvert og eitt hverfafélaganna í samstarfi við Viðar halda almenna kynningu á niðurstöðum könnunarinnar þar sem s.k. leiðarvísir verður einnig lagður fyrir. Í leiðarvísinum verður að finna fróðleik um hvernig best er að stuðla að ánægjulegra umhverfi í íþróttastarfinu. Þess má geta að leiðarvísirinn ásamt spurningalistanum hafa verið unnin í samráði við hvert og eitt félag.



Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 12:22
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700